Labbitúr í hverfinu heima :)
Já og í þetta skipti var það ég :) Mamma og Hildur frænka fóru í fyrsta skipti með mig út að labba í gær. Það var 5°C úti svo tækifærið var nýtt til að fara í smá göngutúr með vagninn. En í gærkvöldi tók ég fyrstu alvöru grát syrpuna fyrir mömmu og pabba (fyrir utan þessa sem ég tók í skírninni minni) ég grét með smá hléum í c.a klukkutíma og M&P vissu ekki sitt rjúkandi ráð, hvort það væri loft í maganum, hvort þetta væri magaverkur vegna kryddaða matarins sem mamma borðaði í fyrradag (skamm mamma) eða hvað væri eiginlega að hrjá mig. En svo hætti ég að gráta og svaf bara ágætlega í nótt. Pabbi fór austur í morgun svo ég og mamma erum bara tvær heima í dag. Ég byrjaði daginn á því að væla og vilja bara vera í fanginu á mömmu, og hún mátti bara ekki leggja mig neitt frá sér, svo hún gat ekki einu sinni fengið sér að borða fyrr en núna fyrir 5 mín, því þá lagði hún mig í vagninn þar sem ég stein sef núna :)
Kveðja,
Hekla María sem þolir líklega ekki kryddaðan mat :)
Kveðja,
Hekla María sem þolir líklega ekki kryddaðan mat :)

1 Ummæli:
Hæ elsku Helga
Innilega til hamingju! Ég hef verið að reyna að senda þér tölvupóst á hotmail netfangið en fæ hann alltaf til baka. Ég er að sjá fyrir endann á þeirri mestu verkefnatörn sem ég hef staðið í. Verðum að fara að hittast. Knús, Stína.
Skrifa ummæli
<< Heim