þriðjudagur, maí 23, 2006

Önnur tönnsla

Allt gott að frétta héðan. Þriðja tönnin mætt í munn, vinstri framtönn. Ég er ennþá í mínu eigin herbergi og þannig verður það bara áfram finnst að allt gengur svona vel. Núna eru M&P að taka af mér næturgjafirnar, ég fæ ekkert að hitta mömmu eftir tannburstun á kvöldin og fram á næsta morgun. Eingöngu pabbi og vatnspeli í boði! Bara komin ein nótt með þessu fyrirkomulagi og ég er ekki par hrifin skal ég segja ykkur. Pabbi þurfti að hlaupa einhverjar 3-4 ferðir inn til mín í nótt og hugga mig lengi lengi í hvert skipti. Þegar ég er reið á nóttinni, þá kann ég að segja mamma. Það eru einu skiptin sem ég segi....eða öskra maaaaamma. Jamm aumingja pabbi er örugglega voðalega þreyttur í vinnunni í dag :(

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim