Tali tali ..
Nú er ég búin að vera 5 daga í aðlögun og síðasti dagurinn fyrir frí er í dag. Fóstrurnar sögðu við mömmu að ég væri svo svo sæt og skemmtileg og að það væri svo gaman hvað ég væri klár og talaði mikið!!!!! Ég hélt að mamma myndi tapa sér af stolti ... ég verð kannski aðeins að róa þetta svo ég klári nú ekki öll orðin fyrir tveggja ára afmælið. Maður verður má nú ekki spila öllum trompunum í einu.
Pabbi sótti mig á leikskólann eftir hádegisblundinn í gær og ég fór með ömmu og Möggu frænku og Sindra frænda í búðarrölt í bænum. Er ekki alveg að fatta að það þarf ekki alveg sama hávaðann á röltinu í miðbænum til að ná athygli eins og á leikskólanum ... ég hrópaði allt sem var sagt á búðarröltinu .. "máta pils" "máta bol", "prufa pils". Ég er samt enn soldið feimin við Margréti og það tók mig 20 mín að byrja að tala við hana. Svo mátti bara Sindri og amma bara leiða mig og ef Margrét ætlaði að reyna þá stakk ég bara hendinni inn í peysuna til öryggis.... í bili.
Svo fer ég í fyrsta sumarfríið mitt í næstu viku ... reynum líklega að njóta þess aðeins að vera í sveitinni ...

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim