Sumar í Pedro Rico
Jæja, nú er sumarið komið í Madrid. Það eru 39-36°C hvern einasta dag og besta stund dagsins er þegar maður nær að dýfa sér aðeins í sundlaugina, sem er hressilega köld :) Við erum líka með eina litla sundlaug á svölunum sem Hekla dýfir sér stundum í á daginn og kvöldin. Hekla María er enn í leikskólanum en þetta fer að styttast því eftir 2 vikur förum við fjölskyldan í viku frí, og eftir það fer hún ekki aftur í leikskólan. Hún kann víst meira í spænsku en okkur grunar, því í gær svaraði hún heillangri spurningu húsvarðarins (sem Helga og Hildur skildu ekki) með "en coche" ... sem var alveg satt, þær voru að fara í bílinn :) Við vitum svo sem ekki hver spurningin var, en þetta var samt gott svar :)
Ég setti inn eitt lítið video af gimpinu manipulera foreldra sína yfir hádegismatnum. Alltaf gaman að eiga svona lítil video af hversdagslífinu.
VIDEO (20MB)

2 Ummæli:
Hekla þú ert snillingur :)
kær kveðja,
Margret
Þetta er fyrsta myndin sem mér finnst Helka María allt í einu líkjast ykkur báðum mjög mikið.
Skrifa ummæli
<< Heim