sunnudagur, desember 21, 2008

Fyrsta brosið og fleira skemmtilegt


það var skemmtilegur dagur í dag hjá okkur fjölskyldunni. Við Hekla fórum á sérstaka forsýningu í bíó á Skoppu og Skrítlu með Sigurlaug og Guðrúnu Fjólu og vorum sko ekki sviknar af því, myndin var æðisleg.
Svo komu þau Daði, Gunnhildur, Þórdís og Axel í heimsókn. Þórdís og Hekla náðu ansi vel saman og voru duglegar að leika sér, það var mikið fjör í Laxakvíslinni :)
Af litla kút er það helst að frétta að hann er búinn að vera frekar órólegur undanfarið, bæði á daginn og á nóttinni. Hann hefur ekki náð almennilegum svefni fyrr en 3,4 á næturnar og verið óhamingjusamur af og til á daginn líka í hátt í tvær vikur núna. Í gær byrjuðum við að gefa honum minifom dropana, höfðum ekkert sérstaklega mikla trú á þeim þar sem þeir virkuðu ekki neitt á Heklu á sínum tíma. En það er óhætt að segja (allavega enn sem komið er) að þeir eru að gera kraftaverk! Litli kútur svaf mjög vel síðustu nótt og var glaður og ánægður í dag. Hann brosti í fyrsta skipti almennilega í dag og sparaði ekkert brosin eftir það :) Foreldrunum til mikillar ánægju.
Nú ef hann ætlar að halda þessum rólegheitum til streitu og fara að sofa á nóttinni, þá þarf mamman nú að fara vinna í því að snúa við sínum sólarhring!

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim