fimmtudagur, janúar 21, 2010

Í gamla daga ...

Eftirfarandi samtal fór fram á Miklubrautinni milli kl 17 og 18 í dag.

Hekla. Amma ég vil borða kvöldmat hjá þér

Amma. Það er ekki hægt ég er að fara strax aftur niður í bæ að segja konum frá því hvernig lífið var í gamla daga.

Hekla. Nú vita þær það ekki, þá voru engir leikskólar og börnin alltaf í frí.

Það er rétt hjá Heklu að það má bara afgreiða málin á einfaldan hátt.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim