Nyt år
Ekkert blogg síðan 13. október. Það segir nú kannski örlítið um hversu mikill tími hefur verið aflögu síðustu vikurnar. Það verður samt að documentera hvað Loki litli (eins og Mikki nágranni kallar hann) kann um þessi áramót.
ið erum farin að þekkja nokkur orð hjá honum, þó þau séu nú ekki alveg skýr. "Pabbi" og "mamma" er nokkuð skýrt, og svo kemur "nammi" (matur) fljótt á eftir og svo "heka" (Hekla) og "Boi" (Bolti). Hann er samt farinn að taka rosalega vel eftir og röltir að baðherberginu þegar maður spyr hvort það sé komin kúkableyja :) Hann veit líka nákvæmlega hvað er í gangi þegar maður segir "peli" og "dudda".
Hann er farinn að klifra upp á allt sem hann kemst í. Litli stofuskenkurinn var fyrsta fórnarlambið og var því húsgagni forðað af hættusvæðinu því hann var farinn að komast upp á það á 2,9 sekúndum og þá var voðinn vís. Hann er fjarstýringabrjálaður, og er alveg búinn að átta sig á að hann getur stillt rásirnar á sjónvarpinu með svörtu fjarstýringunni og búið til skemmtileg hljóð og hreyft rúmið með fjarstýringunni inni í svefnherbergi :)
Hann er samt ekki búinn að læra að sofa út :)

2 Ummæli:
Gleðilegt ár. Gaman að sjá að nýja árið byrjar á bloggi. Eiginlega kominn tími til.(Segir sú sem ekki bloggar).
Hér á bæ er mikill áhugi á að fá Heklu í næturgistingu. Er það séns þessa helgina? Ef það er áhugi hjá ykkur og henni, sláið þá á þráðinn.
Kv. Guðrún Soffía
Gaman að sjá bloggið lifna við, þetta veit á gott fyrir komandi ár :)
Knús
Margret
Skrifa ummæli
<< Heim