þriðjudagur, nóvember 08, 2005

Ááááiiiiiiiii........

Það var nú líklega ekki rétt tilgetið hjá mömmu að þetta hafi verið sterki maturinn sem hún borðaði á föstudaginn sem hafi svo farið svona illa í mig á laugardaginn! Því síðustu 3 kvöld hef ég grátið tvo tíma í einu á kvöldin, byrja c.a kl 21.30 og hætti c.a 23.30 (með smá hléum þó) og sef svo vel á nóttinni. Þetta er alveg týpiskt munstur fyrir svona hvítvoðunga eins og mig sem eru með magakveisu!! Jamm, þannig að í gær byrjuðu M&P að gefa mér minifom dropa sem eiga að hjálpa til við að losa loft og koma ró á magann. Við sjáum í kvöld og á morgun hvernig það er að virka fyrir mig. En við erum sko strax komin með plan til að reyna finna út hvort við getum stoppað þetta og það er c.a svona:
Ef droparnir virka ekki þá ætlar mamma að laga mataræðið aðeins hjá sér, taka út mest allan sykur, borða aðeins hollara yfir daginn og sjá hvort það lagar eitthvað. Þetta prófum við í c.a tvo daga til að sjá hvort eitthvað lagist.
Ef þetta lagar ekki neitt, þá ætlar mamma að taka út allar mjólkurvörur og sjá hvort það lagi eitthvað (það er mjög algengt að það fari illa í lítið fólk eins og mig til að byrja með).
Ef þetta lagar ekkert (þarna er þá komin næstum því vika) þá förum við til læknis og fáum alvöru magakveisu lyf. En vonandi virka droparnir bara og við þurfum þá ekki að prófa neitt af þessu.
En fyrir utan þessa erfiðu tvo tíma á kvöldin þá er ég voðalega hamingjusöm, sef vel á nóttinni og er bara vær og góð á daginn. Svo fæ ég líka alveg rosalega mikið að drekka hjá mömmu og henni finnst hún bara sjá mig stækka á hverjum degi, sem er kannski ekki svo fjarri því að vera rétt því hjúkkan kom í ungbarnaeftirlit hingað heim í dag og vigtaði mig og ég er orðin 4100g hvorki meira né minna!!

Kveðja,
Hekla M. Aría :)

2 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Til hamningju með fyrsta mánuðinn - og með að hafa brotið 4kg múrinn :)
-Magga frænka í Ameríku

3:11 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Það er nú ekki langt í að hún nái í skottið á frænku sinni. Hún er 4550g. Til hamingju með þessa þyngd elsku frænka:)

4:44 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim