mánudagur, janúar 02, 2006

Ég fæddist í fyrra :)

Ég er orðin stór stelpa, ég fæddist í fyrra. Nú eru fyrstu jólin og áramótin mín búin. Ég eyddi jólunum með M&P að sjálfsögðu og Hildi frænku. Þetta voru mjög kósí jól hjá okkur, ég fékk fullt af pökkum. Þetta var svo kósí að ég lét bara M&P sjá um að opna pakkana á meðan ég slappaði bara af og horfði á. Ég fékk fullt af fallegum jólagjöfum, föt og dót.
Magakveisan mín er hætt, ég er vaxin upp úr þessu týpíska ungbarnakveistu tímabili. En nóttin hjá mér er samt sem áður ennþá frá c.a 4-12. Ég fæ séns á að hafa þetta eftir mínu höfði út þessa viku, M&P ætla hitta svefnráðgjafa á föstudaginn sem ætlar að kenna þeim að kenna mér að fara snemma að sofa......HA! Gangi þeim vel!
Ég er mjög ákveðin stelpa og læt engan segja mér hvernig ég á að hafa hlutina, ég læt vita hvernig ég vil hafa hlutina. Ég veit t.d hvernig ég vil láta halda á mér á kvöldin þegar ég held uppi stuðinu á bænum þegar ég vil ekki sofa, þá læt ég vita ef ég vil snúa fram og skoða í kring um mig eða hvort ég vilji liggja inn í teppi með snuddu og kúra. Jamm gott að hafa það á hreinu hvað maður vill í þessu lífi :)

Kveðja,
Hekla María, þriggja mánaða á sunnudaginn :)

1 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Hæ snúlla...
Gleðilegt ár...hökkum til að sjá þig aftur skotta:)
Kveðja Agnes og Þórir Símon

9:18 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim