Kósíheit par excelance
Mamma er búin að setja upp jólaseríur út um allt, alveg að missa sig í þessu kerlingin og kósíheitin þar af leiðandi orðin allsráðandi á heimilinu. En Merkilegt nokk, það hefur ekkert bólað á magaverk á heimilinu síðustu daga....þetta er þriðja kvöldið í röð sem ég hef það bara náðugt án þess að vera engifer :) (Engifer = engjast um). Vona bara að hann sé farinn fyrir fullt og allt blessaður. Mamma fékk kvef pest um daginn og svo ég á eftir henni en við erum báðar lausar við þetta en núna er pabbi gamli orðinn lasinn :( Vonum bara að hann verði jafn fljótur að jafna sig og við mamma vorum...

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim