föstudagur, september 26, 2008

Heimkoma

Þá er fjölskyldan flutt aftur til Íslands og búin að koma sér fyrir á heimilinu eftir spánardvölina. Það var að sjálfsögðu mikill léttir að komast aftur inn á sitt eigið heimili og við fundum það líka svo mikið á Heklu hvað hún þurfti á því að halda að finnast hún eiga heima einhversstaðar eftir þvælinginn og eiga sitt herbergi. Hekla María blómstrar í leikskólanum, fer glöð og ánægð út á morgnana og kemur heim full af fróðleik á daginn :) Í fyrradag sat hún hérna við eldhúsborðið á meðan húsmóðirin eldaði matinn og sagði þetta:
Hekla: Mamma, gamla fólkið er lifandi
Mamma: Já það er rétt, gamla fólkið er lifandi
Hekla: Pabbi er gamalt fólk
Mamma: er það?
Hekla: Já og pabbi er lifandi

Afkaplega skemmtilegt fróðleikskorn þar á ferð.
Nú styttist í komu litla bróðurs og smá undirbúningur fyrir það er hafinn. Búið að kaupa bílstól og skiptiborð og Hekla er alveg með á hreinu að hún þarf að kenna honum voðalega mikið þegar hann kemur. Hún ætlar að kenna honum að labba og borða, já svo ætlar hún með honum í eltingaleik, en mamma verður samt að halda á honum í eltingaleiknum af því hann kann ekki að labba :)
Við erum öll mjög ánægð að vera komin heim aftur, auðvitað mikið drama í veðrabreytingum, að fara úr öfga hita og logni í öfga haustlægðir...en engu að síður gott að vera komin heim :)
Myndir fyrir síðasta hálfa árið eru komnar inn á smöggann http://engifer.smugmug.com :)

5 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Til hamingju með að vera komin í eigið húsnæði. Nú bíðum við bara eftir innflutningspartýinu!

7:03 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

... ferlega var skemmtilegt ad sja myndir ... kv. fra LA :)
Margret

8:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Við erum ekki með neitt lykilorð til að sjá myndirnar! :(
Kv. Silla og Sigurður Flóvent

7:08 e.h.  
Blogger Unknown sagði...

Til hamingju með daginn elsku frænka. Hlakka til að knúsa þig bráðum.

Kveðja Sigurlaug

7:19 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

til hamingju með daginn.
>--- Knús ---<
Margrét

9:59 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim