laugardagur, febrúar 28, 2009

Velta, rúnstykki og englabók

Það þarf að skjalfesta nokkur atriði í dag.
Logi Þór velti sér yfir á magann í gær. Hann gerði það reyndar fyrir c.a 2 vikum síðan, en það var eiginlega algjörlega óvart þá og hann endurtók það ekki.
Í gær hins vegar velti hann sér yfir á magann og endurtók það 4 sinnum eftir það.
Fór létt með þetta drengurinn.
Hekla María gerir í því að skemmta foreldrum sínum núorðið.
Í dag eftir íþróttaskóla og bakarísferð sátum við mæðgurnar inn í eldhúsi að borða rúnstykki og hún var í þann mund að klára helminginn af sínu sem hún valdi sér þegar hún benti á hinn helminginn og sagði að pabbi sinn ætti að fá hann, en hún hins vegar ætti að fá annað og stærra stykki sem var ætlað honum. Nú já, ég ákvað að andmæla því ekki heldur athuga hvort hún myndi nú ekki skipta bara um skoðun þegar hún lyki við þennan helming sem hún var með. En þá tók hún upp á því að kroppa aðeins innan úr helminginum sem hún ætlaði pabba sínum og sagði svo "svona! Nú festist þetta ekki í tönnunum á pabba" og bað mig pent að því loknu um að smyrja stóra fína rúnstykkið sem pabbi hennar átti upphaflega að fá :)
Svo sagði hún okkur ansi skemmtilega sögu í kvöld. Hún sagði okkur frá því þegar hún labbaði ein út í búð að kaupa englabók. Hún labbaði ein út í búð á spáni með pening, af því hún mátti það. Hún keypti englabók og lét búðarkonuna hafa peninginn og bókin sú var ekki eingöngu handa henni heldur handa öllu fólki. Svo sagðist hún ætla segja okkur restina af sögunni þegar hún væri búin að sofa :)

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim