sunnudagur, mars 29, 2009

Logi Þór er kominn með fyrstu tönnina sína. Vinstri framtönn í neðrigóm.
Pabbinn fann hana á fimmtudaginn var. Eitthvað hafði drengurinn verið pirraður vikuna á undan, svaf óvenju stutta lúra á daginn og svaf ekki vel á nóttinni.
Hann er líka byrjaður að fá graut. Það er komin tæp vika núna sem hann fær rísgraut á kvöldin áður en hann fer að sofa. Hann fékk aðeins í magann af grautnum en ég held að hann sé að komast yfir það núna. Síðustu 3-4 kvöld hefur hann sofið streit í 7 tíma! Klapp klapp fyrir því. Vonandi heldur hann því áfram, hvort sem það er grautnum að þakka eða bara að tannapirringurinn sé farinn.
Hann er orðinn mjög duglegur að velta sér og er farinn að sýna smá skriðtakta líka. Í dag sá ég hann setja lappirnar alveg undir sig eins og hann væri bara að fara leggja í hann.
Hann dýrkar systur sína, það fer ekki á milli mála. Oft þegar hann er pirraður og vælinn og hún byrjar að syngja þá snar hættir hann og fylgist bara með henni og hlustar.
Um daginn fékk hann svo hláturskast hérna í fanginu á mér þegar hann var að fylgjast með Heklu. Þá var hún að hoppa og skoppa hérna á gólfinu og hann fylgdist með og hló og hló......ekkert smá sætt.


Hekla María er komin með sund og bókasafns bakteríu. Henni finnst fátt eins skemmtilegt og að fara með pabba í sund og mömmu á bókasafnið.
Hún er alltaf jafn góð við litla bróðir sinn og oft situr hún hjá honum hérna á leikteppinu og syngur fyrir hann og dundar sér.
Svo gerðist það í fyrradag að hann var pirraður og ég hélt á honum og ruggaði með hann í fanginu og hún stóð hjá okkur og strauk honum og sagði:
"Æ hann er svo sætur. Hann er svo óskaplega sætur.
Ég elska hann" og mamman bráðnaði.
Við mæðgurnar flettum í gegnum bunka af teikningum sem hún kom með af leikskólanum í dag og Hekla útskýrði það sem fyrir augu bar. Hún er búin að þróa margfætlu teikningarnar sínar nokkuð mikið, fólk hefur nú réttan fjölda útlima og jafnvel munn augu og nef. En svo inn á milli koma teikningar sem eru ....ja hvað skal segja...abstrakt :) en Hekla er alltaf með útskýringu á þeim...þær eru alltaf rakettur :)

1 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Snilld ... gaman að lesa bloggið ... iða svo í skinninu eftir mars myndunum.

Knús,
Margret

2:02 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim