föstudagur, febrúar 26, 2010

Veikindadagar

Best að blogga meðan buildar :) Logi er búinn að vera veikur síðustu 3 daga, hósti og brjálað kvef. Í kvöld bættust svo tvær myndarlegar ælur við pakkann þannig að hann verður heima á morgun, 4. daginn í þessari viku. Hann fékk astma-púst á heilsugæslunni í dag, en andardrátturinn í kvöld er miklu betri en síðustu daga þannig að við ákváðum að bíða með að gefa honum pústið. Þetta er bara nákvæmlega sami pakki og með Heklu fyrir 3 árum ... hann er bara ekki enn kominn í sama eyrnapakkann og hún fór í ... vonum að hann sleppi.

Hann var annars farinn að sofa alla nóttina rétt fyrir veikindi, svaf nokkrar nætur í röð frá 8-8 (mas o menus)

Annars fennti allt í kaf hérna síðustu nótt. Hekla hefur tekið snjónum fagnandi, þetta er í raun fyrsti snjór vetrarins. Ég fór út með henni eftir leikskólann í dag og Logi var með okkur í hamaganginum ... í gegnum gluggann á herberginu hennar Heklu.

Annars samkjaftar Logi ekki þessa dagana ... hann talar eitthvað sem liggur á milli thailensku og mandarín en inn á milli kemur ör-íslenska. Hann svaraði tvisvar í fyrrakvöld þegar ég spurði hvað hann héti e-u sem ég heyrði alla vega sem "eti ooi" :) Betra gerist það nú varla :)

Spennandi tímar framundan þegar hann fer að útskýra hegðun sína, t.d. af hverju hann sópar öllum matnum á gólfið þegar hann hefur fengið nóg, en vill svo dunda sér við að tína afganga þegar hann er tekinn úr stólnum.

1 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Hér er líka allt á kafi í snjó :) Ofboðslega jólalegt, en ömurleg nettenging þannig að það varð eitthvað lítið úr alpha prófunum, en ég redda því þegar ég er komin í siðmenninguna.

Knús á liðið,
Margrét

10:05 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim