Orðabókin stækkar
Annars er að bætast í orðabókina hjá Loga þessa dagana, Hekla er "siti" ... "ot" er ostur, "bau" er brauð "meija" er meira og "e[fruss]i" er epli :) Annars skilur hann orðið öll þau skilaboð sem honum eru gefin en er samt ekki hættur að klifra upp á stofuborðið þar til e-r tekur eftir honum.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim