mánudagur, mars 19, 2012

Draumadís


Ennþá er litla viðbótin pollróleg og ekkert bólar á magakveisu eða annarri óværð ennþá. Þetta fer að venjast ansi vel að hafa þessi rólegheit og nægan tíma til að sinna hinum systkinunum, þ.a það er eiginlega ekki í boði að fara breyta þessu neitt!
Við mæðgurnar fórum að hitta vinkonur mínar í gærkvöldi og það var eiginlega í fyrsta skipti sem litlan fer út á djammið, þ.e ekki bara til læknis eða aðra skilduferð. Í dag fórum við svo í Breiðuvíkina í graut og er það í fyrsta skipti sem öll 5 manna fjölskyldan fer eitthvað saman og telst það nú til tíðinda :) 7 manna bíllinn kom s.s að góðum notum í dag :)
Annars hef ég verið á ferðinni án vandræða síðustu daga, litlan bara heima hjá pabba sínum í rólegheitum á milli brjóstagjafa. Ég og eldri systkinin fórum til að mynda í fermingaveislu um helgina og stoppuðum í 3 klst. án vandræða, sú stutta beið bara róleg eftir næstu gjöf :) Myndin af Loga Þór er s.s tekin áður en við fórum í veisluna.

1 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Flottur!!!
mvb

10:09 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim