Dagur 3 í lífi prinsessu.
Jæja, þá er prinsessan orðin tæplega 3gja sólarhringa gömul. Þvílík og önnur eins rólegheit í einu kríli! Við höfum aldrei kynnst þessu svona - það heyrist ekki múkk í dömunni nema þegar við dirfumst að skipta um bleyju. Hún fór í gegnum 5 bleyjur á fyrsta sólarhringnum og meltingin er öll að hrökkva í gang.
Það er líklega of fljótt að fagna magakveisuleysi - en er á meðan er :)
Við erum alltaf að sjá meiri líkindi með 3000 gramma prinsessunni og eldri systkynunum - eftir því sem við tökum fleiri myndir þá líkist hún þeim meira og meira - og þá jafnvel frekar Loga en Heklu. Spennandi að sjá næstu daga hvað verður úr.
Systkynin taka krílinu með kostum og eru kannski full spennt í kringum hana, Logi Þór gerir fimleikaæfingar, helst tilbrigði við handahlaup í hvert skipti sem hann bregður sér í kringum brjóstagjafir. Íþróttaálfurinn er þó yfirleitt fjarlægður með valdi áður en stórslys verður. Hekla ætlar með mynd í skólann í fyrramálið af sér og litlu systur

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim