miðvikudagur, desember 21, 2005

Það sem ég kann að segja


Ég hef sagt tvisvar sinnum hæ í símann, einu sinni við Hildi frænku og einu sinni við Þórunni ömmu. Svo var ég að spjalla við mömmu mína um daginn og þetta gerðist:
Ég: ahhúhhga
Mamma: Ertu að spjalla við mömmu?
Ég (hátt og skýrt): Jááá!

Já svona er ég nú bráðger. En svo segi ég annað slagið gúúúúú með svona scroll hljóði, en veit ekki alveg hvað það þýðir samt.
Annars kom þessi fyrirsögn í blaðinu í dag, held að það séu til fleiri Heklur en ég, man allavega ekki eftir að King kong hafi orðið á vegi mínum....

Kv.Hekla María.

2 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

þú er svo dugleg þú hefur þetta örugglega frá mér elskann. sakna þín óhemjulega mikið þó að ég heimsótti þig í dag.. bless skvís

3:28 f.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Hæ snúlla,
Mig langaði bara að óska ykkur gleðilegra jóla...hafi þið það sem allra best.Bið að heilsa mömmu og pabba.

Jólakveðja
Agnes og Þórir Símon

1:14 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim