miðvikudagur, nóvember 23, 2005

Broskallinn minn

Jæja, loksins gefur mamma sér tíma til að líta af mér til að blogga fyrir mig :) Ég er alltaf með magaverkinn minn á kvöldin, en er mis slæm þó. Í gærkvöldi fékk ég reyndar engan magaverk, en það er í annað skiptið sem það kemur fyrir eftir að ég byrjaði á þessum aríum mínum á kvöldin. En við ætlum að kíkja til læknis á morgun og athuga hvort hann geti gert eitthvað fyrir mig.
Mamma teiknaði broskall á blað fyrir mig sem hún límdi í rúmið mitt og ég horfi voðalega mikið á hann þegar ég ligg í rúminu mínu.
Ég er byrjuð að skríkja og hjala voðalega mikið, mömmu finnst ég svo mikið æði þegar ég byrja á þessu að hún hlær bara að mér :) Svo í nótt þegar mamma var búin að skipta á mér (hún nóttlega þreytt og mygluð svona eins og hún er venjulega um miðja nótt þegar hún gefur mér að drekka og skiptir á mér) þá tók ég upp á því að hlæja og skríkja að kallinum mínum í rúminu og mamma nóttlega glaðvaknaði og hló bara með mér :)
Svo er ég farin að liggja aðeins á leikteppinu mínu á daginn, þessu sem Magga frænka mín kom með frá Ameríku. Mér finnst það voðalega gaman, en bara stutt í einu, hef ekki þolinmæði ennþá til að vera þar lengi. Mamma tók stutt myndband upp af mér á leikteppinu í dag, ég var í svo miklu stuði og spjallaði og spjallaði. Pabbi ætlar að setja myndbandið á netið svo Magga geti kannski kíkt á það og séð hvað ég er orðin stór og klár að tala :)

Kveðja,
Hekla María.

1 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

hlakka til að sjá videó-ið :)
-mvb

2:08 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim