Guð minn góður hvað það er mikið til í þessu....
Foreldrar og börn.
Að verða foreldri breytir öllu í lífi þínu. Foreldrahlutverkið breytist líka með hverju barni.
Hér eru nokkur dæmi um hver breytingin verður frá fyrsta til þriðja barns.
Föt
1.barn: Þú ferð í óléttufötin um leið og þú ert búin að pissa á pinnann og fá tvö strik.
2.barn: Þú ert í þínum venjulegu fötum eins lengi og þú mögulega getur.
3.barn: Óléttufötin eru þín venjulegu föt.
Undirbúningur fyrir fæðingu
1.barn: Þú gerir öndunaræfingar, mjög samviskusamlega.
2.barn: Þú nennir ekki að æfa, vegna þess að þú mannst að síðast gerðu öndunaræfingarnar ekkert gagn.
3.barn: Þú pantar mænudeyfingu strax á 8. Mánuði.
Barnafötin
1.barn: Þú þværð öll litlu sætu fötin, straujar og brýtur saman og raðar í kommóðuna.
2.barn: Þú rennir í gegnum fatabunkann, hendir því sem er mjög blettótt og þværð restina.
3.barn: Strákar geta alveg verið í bleiku, er það ekki ?
Áhyggjur
1.barn: Við fyrsta kjökur eða tíst sem heyrist úr vöggunni, rýkurðu til og tekur barnið upp.
2.barn: Þú tekur barnið upp, svo það veki ekki eldra barnið með vælinu.
3.barn: Þú kennir þriðja barninu að trekkja sjálft upp óróann yfir vöggunni.
Snuðið dettur í gólfið
1.barn: Þú tekur það upp og notar ekki aftur fyrr en þú ert búin að sjóða það rækilega.
2.barn: Þú skolar það undir næsta krana, eða bara með svolitlum ávaxtasafa úr glasi barnsins.
3.barn: Þú þurrkar það mesta af því í bolinn þinn og stingur því aftur upp í barnið.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim