þriðjudagur, janúar 03, 2006

Ég kann að grípa

Í dag gerðist sá merkilegi atburður að ég greip apann minn sem hangir á leikteppinu mínu. Magga frænka var í heimsókn og sá þegar ég byrjaði á þessum æfingum og þá horfðu þau öll á mig og ég endurtók þetta nokkrum sinnum, breiddi hendurnar í sundur og setti þær saman um apann :)
Ég og mamma fórum í heimsókn í dag til Rakelar sem er að vinna með mömmu, en hún eignaðist strák þann 2.des sl. sem var nánast jafn þungur og ég þegar ég fæddist. Mömmu fannst alveg meiriháttar gaman að sjá hvað ég er orðin stór og mikil bolla :) Hún fékk nefnilega að halda á honum á meðan Rakel fór í sturtu og henni fannst alveg ótrúlegt að ég hafi verið svona fyrir bara tveimur mánuðum! Við skellum inn myndum af okkur saman fljótlega....

Kv.Hekla María.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim