mánudagur, ágúst 10, 2009

Ha? Er að koma haust!

Jæja, eins gott að ná einu bloggi áður en börnin fara að skrifa þetta blogg sjálf. Logi Þór hefur haldið okkur nokkuð buzy fyrstu 9 mánuði ævi sinnar. Týpísk nótt er vakn kl 11.30, 12.00, 12.15 .... 02.00, 02.15, 05.00 (jeiii við náðum 3 tímum í svefn) 06.00 ... og þá situr hann glaðvakandi í rúminu og vill komast fram. Svo er bara hafragrautur og lýsi, leikur til kl 8 og þá sefur hann í vagninum í 2-3 tíma. Eins gott að halda þessu recordi til haga svona þegar hann fer að væla um þurfa að vakna í skólann!!! :) :)

Annars er hann nýfarinn að gera heiðarlegar tilraunir til að labba. Hann fór fyrir viku að reisa sig upp alls staðar þar sem hann nær taki og svo bara taka strauið í átt að e-u spennandi. Þessar tilraunir (og 10 sekúndna athyglisbrestur foreldra) enduðu á því í síðustu viku að hann lá alblóðugur á stéttinni fyrir framan stofuhurðina, hann hafði þá látið sig gossa út í garð. 7 tennur og þá held ég að flest afrek séu hér upptalin eftir langt blogghlé.

Hekla byrjaði aftur á leikskólanum í dag. Þá daga sem við höfum verið í bænum í sumar hefur vinátta hennar við Evu reddað málunum hérna. Þær urðu "bestu vinkonur!" einn daginn í vor og svo sjáum við hana varla því þær eru svo duglegar að leika sér. Hún lærði líka að reikna smávegis (3+3, 1+2... ) en gleymdi því svo þegar Magga frænka fór að rukka um stærfræðina. Ég held að það hafi verið viljandi, hún kann orðið að "manage expectations" :) Svo framkvæmdi hún glæsilegt "mamma og pabbi eru ekki heima svo ég verð að borða hamborgara hjá ykkur" trikk á foreldrum Evu í fyrradag og var ekki sátt þegar það komst upp fyrir slysni og hún var dregin heim til sín í mat :) Litli snillingur! :)

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim