Er ekki kominn tími til að blogga
Nú skal bloggað á ný. Í dag er sá merkilegi dagur 15.02.2012 eða settur dagur fyrir fimmta meðlim fjölskyldunnar að koma í heiminn. Heilsan er góð, þ.e hjá þeirri óléttu... og reyndar öðrum fjölskyldumeðlimum líka :) Af systkynunum er það helst títt að Hekla María er rosa dugleg og áhugasöm í skólanum og svo er hún í fimleikum tvisvar í viku. Logi Þór er orðinn voðalega stór strákur allt í einu. Hann er ný farinn að sofa í "stóru stráka" rúmi, en kemur alltaf uppí til mömmu og pabba á nóttunni samt. Í nótt gerðist reyndar sá merkis atburður að hann kom ekki uppí. Við vorum að velta því fyrir okkur hvort þetta væri eitthvað teikn um komu nýja barnsins? Ekki gott að segja. En hann er allavega að taka einhvern svakalegan þroskakipp finnst okkur, farinn að róast aðeins og hlusta og taka mark á því þegar honum er bannað að gera eitthvað o.s.frv.
Nú eru liðnar c.a 3 vikur frá því við fluttum í nýja húsið og allt að komast á sinn stað og framkvæmdir mjög vel á veg komnar. Píparinn kemur í fyrramálið og leggur lokahönd á að klára klósettið niðri, Geir var að spartla eldhúsið í dag og verður það brátt málað. Þá á eftir að mála og skipuleggja þvottahúsið og svo er það bara hausverkurinn með blessaða gólfefnið á eldhúshæðinni :/ En okkur líður svakalega vel hérna og erum í skýjunum yfir þessu fallega heimili okkar bara :)

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim